Fyrsti veiðidagur ársins í Norðurá var mjög góður. Settu veiðimenn í 24 laxa og lönduðu 10 af þeim.  Flestar tökurnar voru í yfirborðinu, á flotlínu og sunray eða hitch túpur. Laxarnir voru á bilinu 70-80 cm. Lax var að ganga uppí ána og tóku veiðimenn eftir því að töluverð hreyfing var á laxinum. Flestir laxana sem komu á land voru lúsugir. Nú um kl. 9 í morgun, 6. júní, var einn lax kominn á land til viðbótar.

Nú á næstunni er bæði lausar stangir í Norðurá I dagana 8-10. júní og einnig 15-18. júní en stærsti straumur júní mánaðar er 16. júní. Á Munaðarnessvæðinu, Norðurá II, er eitthvað laust fram til 14. júni og svo einnig eftir 20. júní. Þar eru veitt frá morgni til kvölds, ekkert veiðihús fylgir svæðinu. Sendið línu á [email protected] fyrir nánari upplýsingar.

[email protected]