Veiðin í Ytri Rangá var svo sannarlega mögnuð í dag, á fyrsta veiðidegi árinnar þetta sumarið. Á morgunvaktinni komu alls 25 laxar á land og sú síðari gaf 10 laxa. Veiðimenn settu að auki í fjölmarga aðra laxa sem ekki náðust á land. Samtals komu því 35 laxar á land sem er met á fyrsta veiðidegi í Ytri. Fyrra metið var 31 lax en þá var maðkur og spúnn einnig leyfilegt agn en í dag er einungis veitt á flugu. Flestir laxana komu á land í Djúpós en annars var lax að veiðast á flestum stöðum fyrir neðan brú. 32 laxar voru stórir en að auki komu 3 smálaxar á land. Stærsti laxinn var 92 cm langur. Veitt er á 12 stangir á aðalsvæðinu í Ytri nú í júní.
Hér má finna lausa daga í Ytri Rangá
Hér eru nokkrar myndir frá deginum,
{gallery}yy{/gallery}
info at veida.is