Nú er laxveiðivertíðin að komast á fullt skrið og er lofar byrjun tímabilsins ansi góðu. Við höfum sagt fréttir af frábærri byrjun í Ytri Rangá að undanförnu en þar eru lausir dagar nú í júlí. Svo minnum við á staka daga í Skógá en þar er veitt frá morgni til kvölds, ekkert veiðihús. Svo eru flott holl í Hvolsá og Staðarhólsá komin inná vefinn. Frábær kostur við stóra og litla vinahópa, gisting fyrir allt að 12 manns og leyfilegt agn er fluga og maðkur. Svo eru laus veiðileyfi í nokkrum laxveiðiám til viðbótar, eins og hér má sjá.

info@veida.is