Laxveiðitímabilið er nú komið á fulla ferð, flestar ár hafa nú verið opnar í nokkra daga og enn aðrar eins og veiðisvæði Brennu í Borgarfirði hefur nú verið opið í um mánuð. Gangurinn þar hefur verið stígandi að undanförnu og í gærkveldi heyrðum við af veiðimanni sem var þar við veiðar í gær. Hann landaði 10 löxum og setti í og missti annað eins. Hann sagði að mikið af laxi væri að ganga þar í gegn núna. Nú næstu daga er stórstreymi og spennandi að sjá hvort það skili ekki meiri krafti í þær ár, sem hafa verið rólegar til þessa.
Gangurinn í Ytri Rangá hefur verið mjög góður frá opnun. Stórlaxar eru að veiðasta á hverjum degi í bland við smálaxinn. Hér má finna lausa daga í Brennu og Ytri Rangá.
info at veida.is