Veiðin hófst í Gufuá fyrir nokkrum dögum og nú á sunnudaginn, 28. júní, kom fyrsti laxinn á land. Kom hann á land á veiðistað nr. 4. Síðustu daga hafa veiðimenn einnig sett í fleiri laxa í neðri hluta árinnar en að auki hafa veiðimenn náð nokkrum urriðum á land. Það eru ekki margir lausir dagar í Gufuá í júlí, en samt nokkrir og þá má sjá hérna. Verð veiðileyfa fyrir daginn er frá 20-25 þús í júlí.
Við minnum á að búið að er að koma fyrir góðum veiðikofa fyrir veiðimenn við Gufuá. Veiðihúsið hefur allt til alls og geta veiðimenn gist í húsinu nóttina fyrir veiðidaginn.