Eins og við sögðum frá fyrr í vikunni þá hefur töluvert af laxi verið að ganga í Gufuá og veiðimenn verið að setja í fiska á neðstu svæðum árinnar. Dagurinn í dag var framhald af þessum ágæta gangi í ánni, en nú voru 2 ungir veiðimenn við veiðar. Þeir náðu að landa 4 löxum og að auki misstu þeir 3 eða 4 aðra laxa. Mikið líf var á neðri svæðum árinnar, frá 0 og uppí 10. Veiðimennirnir eru hér á myndinni viði hliðina. Þeir heita Sigurður Ari Halldórsson tv, og Elías bróðir hans er hægra megin á myndinni.
Nokkrir dagar eru lausir í Gufuá í Júlí – þá má sjá hérna.
info at veida.is