Það er alltaf hálf dapurlegt þegar gamlir höfðingjar falla frá, hvort sem þeir eru úr dýraríkinu eða hafa einhvern tímann gengið um á meðal okkar mannanna – Einn slíkur höfðingi, ættaður úr Varmá, féll frá nú í vikunni. Þessi höfðingi var 82 langur, spikfeitur og hafði lengið velkst um á Stöðvarbreiðunni í baráttu við búttuðu bleikjurnar sem þar berjast um bestu bitana sem falla frá í stöðinni þar fyrir ofan.

Veiðimenn þessa höfðingja eru stórgóðir veiðimenn frá Spáni, sem veiða.is rakst á, rétt eftir að þeir höfðu landað honum. Höfðinginn féll fyrir þungri  tungsten Nympu.  Eins og veiðireglurnar eru í Varmá, þá má hver stöng halda einum fiski pr. dag.

Það verður söknuður af þessum urriða sem hefur margoft kryddað tilveru veiðimanna við Varmá, á annars rólegum dögum.

{gallery}hof{/gallery}

info at veida.is