Nú eru aðeins örfáir dagar eftir af þessari veiðivertíð og í raun, flest veiðisvæði nú þegar lokuð fyrir veiði. Hér inni á veiða.is má þó finna laus veiðileyfi í Ytri Rangá og í sjóbirtingsveiði í Laxá og Brúará. Veíðin í Ytri Rangá hefur verið fín í október, frá ca. 10-75 löxum á dag. Flesta daga eru þó veiðin á bilinu 25-40 laxar. Veiðin í Laxá og Brúará hefur verið góð í haust og nú þegar er veiðin orðin mun meiri heldur en í allt fyrra haust. Hérna má finna dagsetningar og verð fyrir þessa lausu daga.