Ytri Rangá er að sjálfsögðu þekkt fyrir það að vera aflahæsta á landsins, nú undanfarið, ár eftir ár. Í gegnum tíðina hefur hún einnig verið þekkt fyrir góðar smálaxagöngur en síðustu árin hefur stórlaxi einnig fjölgað mikið í ánni og til marks um það þá hafa nokkrir laxar um og yfir 100 cm veiðst í ánni í sumar, sá stærsti 104 cm langur en hann er hér á myndinni til hliðar. Ýmsir veiðimenn sem veitt hafa ána í sumar hafa sagt sögur af risum sem hafa sloppið eftir langa eða snarpa baráttu og menn vita af stórum drekum sem liggja í sínum holum á Rangarflúðunum, Stallmýrarfljóti og í Djúpósnum, en fyrir ofan Árbæjarfoss eru einnig nokkrir alvöru fiskar.
Uppúr miðjum ágústmánuði var stiginn upp með Árbæjarfossi opnaður og á sama tíma var settur upp í stigann fiskteljari sem mælir lengd fiskana. Frá opnun stigans eru m.a. farnir upp fiskar sem voru 120 og 117 cm langir en einnig 3 sem voru 105 cm. Þessar tölur gefa okkur ákveðna hugmynd um magn stórra fiska sem leynast á svæðinu sem er þar fyrir neðan, frá Djúpósi og uppað Árbæjarfossi.