Veiðileyfi Hlíðarvatni í Selvogi – Hlíðavatn í Selvogi er eitt albesta bleikjuvatn landsins. Veitt er á 14 stangir í vatninu og eru nokkur veiðifélög sem skipta stöngunum á milli sín. Hér á veiða.is má finna veiðileyfi frá veiðifélaginu Árbliki. Um er að ræða 2 stangir sem seldar eru saman í einum pakka, í 1 dag í senn. Veiðihús Árbliks við Hlíðarvatn fylgir með leyfunum. Mega veiðimenn mæta til veiða kl. 20 kvöldið fyrir bókaðan veiðidag. Veiða má til kl. 20 á veiðidegi en skila þarf veiðihúsinu eigi síðar en kl. 19 sama dag. Verð veiðileyfa er frá 8-16.000 fyrir báðar stangir í einn dag. Hérna má sjá lausa daga og hérna má lesa nánar um vatnið.