Hvolsá og Staðarhólsá falla í einum ósi til sjávar í Saurbæ, Dalasýslu. Hvolsá sjálf er 9 km. löng þangað sem Svínadalsá og Brekkudalsá sameinast. Staðarhólsá er laxgeng 7,5 km að fossi hjá Kjarlaksvöllum. Norðan við ósana er varnargarður sem myndar lón sem stendur eftir þegar fjarar, en sjór fellur upp í báðar árnar. Meðalveiði síðustu 10 ár eru 194 laxar. Í ánum veiðist einnig töluvert af bleikju en sumarið 2016 voru um 350 færðar til bókar.
Veitt er á 4 stangir í Hvolsá og Staðarhólsá og leyfilegt er að veiða á flugu og maðk. Góð aðstaða er í veiðihúsinu Árseli sem er staðsett við Þjóðveginn skammt frá Hvolsá. Í húsinu er m.a. fjögur tveggja manna herbergi og tvö eins manns herbergi, góð borðstofa og setustofa með sjónvarpi og góðum stólum. Hér er á ferðinni frábært veiðisvæði fyrir fjölskyldur og vinahópa.

Verð fyrir veiðileyfi í Hvolsá og Staðarhólsá eru frá kr. 20-38.000 fyrir hvern stangardag. Hérna má sjá laus holl í Hvolsá og Staðarhólsá.