Veiðileyfi í Fossá eru nú komin á veiða.is, bæði á laxasvæðið og silungasvæðið fyrir ofan Hjálparfoss.

Fossá í Þjórsárdal er falleg lax og silungsveiðiá sem rennur í efri hluta Þjórsár.

Frá Hjálparfossi að ármótum við Þjórsá er eitt samfellt veiðisvæði. Veitt er af báðum bökkum árinnar, þar skiptast á flottar breiður, djúpir hyljir og fallegir strengir. Eitthvað af laxi gengur í ánna í júlí en besti tíminn er þegar líða fer að hausti. Undanfarin ár hefur mikið af vænum laxi veiðst í ánni þegar kemur inní sumarið en einnig veiðist bleikja, birtingur og urriði á laxasvæðinu fyrir neðan Hjálparfoss.

Aðeins er veitt með flugu í Fossá og skal sleppa öllum fiski aftur í ánna. Ekkert veiðihús er við ána og eru veiðileyfi seld frá morgni til kvölds. Veitt er á 2 stangir og eru þær alltaf seldar saman.

Hérna má finna lausar stangir í Fossá.