Laugardalsá er ein albesta laxveiðiá landsins og líklega sú besta á Vestfjörðum. Veitt er með 2 til 3 stöngum í Laugardalsá og að meðaltali veiðast í ánni á bilinu 250 450 laxar á sumri en meðalveiði síðustu 10 ára er 374 laxar. Laugardalsá er staðsett utarlega í Ísafjarðardjúpi. Áin er fremur nett veiðiá,hentug fyrir einhendur og smáar flugur. Áin er hentug fyrir smærri hópa sem kjósa að vera útaf fyrir sig við veiðar í fallegu umhverfi og í góðri á, fjarri „mannabyggðum“.
Hér á veiða.is má finna laus veiðileyfi í Laugardalsá. Ekki er um mörg holl að ræða, enda áin mjög vinsæl meðal innlendra og erlendra veiðimanna. Báðar/allar stangir eru alltaf seldar saman í einum pakka.