Nú eru einungis 2 vikur í að veiðitímabilið hefjist og það er alveg ljóst að veiðimenn, margir, eru orðnir ansi spenntir fyrir nýju tímabili. Veðrið hefur leikið við okkur í allan vetur og miðað við veðurspá næstu daga þá verður lítill ís eða snjór á og við þær ár sem „opna“ 1 apríl, amk. á Suðurlandi.
Hér á veiða.is má finna apríl/mai veiði í Brúará og í Vatnamótin og svo einnig maí holl í Fremri Laxá og á ósasvæði Laxár á Ásum. Vorveiðin í Brúará hefur ætíð verið vinsæl. Nú er fyrsta helgin í apríl uppbókuð en nóg laust helgina eftir og um páskahelgina.
Vatnamótin eru eitt besta sjóbirtingssvæði landsins og oft hefur vorveiðin verið einna best seint í apríl og í byrjun maí. Við eigum laus holl í lok apríl. Stangardagurinn þá er á kr. 13.500.
Nokkur vötn sem eru inní Veiðikortinu „opna“ þann 1. apríl og við hverjum alla til að ná sér í Veiðikortið áður en tímabilið hefst.
Á myndinni hér að ofan er Falur H Daðason með vænan birting úr Geirlandsá, en veiðin hefst þar 1. apríl.