Hafralónsá er ein af perlum norð-austurlands. Stórgóð laxveiðiá sem geymir stóra laxa og væna silunga. Áin er nú komin í útboð, frá og með árinu 2018.
Leyfðar eru 6 stangir á laxasvæðinu og 3 stangir á silungasvæðinu. Laxveiðisvæðið er um 28 km langt með 55 merktum veiðistöðum. Aðeins er leyfilegt að veiða á flugu á laxasvæðinu. Tvö veiðihús eru við ána og er gott aðgengi að stærsta hluta svæðisins.
Nánari upplýsingar gefur stjórn Veiðifélagsins. Frestur til að skila inn tilboðum rennur út föstudaginn 21. apríl. Tilboð skal senda á „Veiðifélag Hafralónsár, Jóhannes Sigfússon, Gunnarsstöðum 681 Þorshöfn.
Tilboð verða opnuð miðvikudaginn 26. apríl kl. 16:00
Veiðifélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.