Nú er fyrsta veiðidegi ársins lokið og dagur númer 2 runninn upp. Frábært veður var víða á veiðislóð í gær en nú hafa orðið veðrabrigði með slyddu/rigningu og hvassviðri á Suður og vesturlandi og úrkomu og hægviðri á norðurlandi. En hvernig var veiðin í gær? Við skulum renna yfir nokkur svæði.
Tungulækur – Veiðin þar var mjög góð í gær, en samt rólegri ef oft áður. Um 50 birtingar komu á land, mest geldfiskur 1,5 -3 pund. Eftir 2ja tíma veiði í morgun voru svo komnir 15-20 fiskar til viðbótar.
Varmá – Ekki voru miklar fréttir úr Varmá. Við vorumá ferð þar um hádegisbil í gær og fram að þeim tíma hafði verið rólegt. Kannski var veðrið að spila inní, enda bjart og stillt og áin fremur tær.
Vatnamótin – Byrjunin í Vatnamótunum var ansi góð. Á bilinu 70-80 birtingar komu á land sem er frábær byrjun.
Brúará og Hólaá – Þokkalegt kropp var í gær þessum ám. Brúará gaf nokkrar bleikjur og í Hólaá var urriðinn nokkuð sprækur. Fjölmargir veiðimenn voru á mismunandi svæðum í Brúará og Hólaá. Við hvetjum alla veiðimenn til að sleppa urriða og bleikju sem veiðist á þessum svæðum á þessum tíma árs.
Geirlandsá – Góð veiði var í Geirlandsá skv félögum í SVFK. Í heildina komu nálægt 70 fiskar á land, sá lengsti var um 87 cm langur.
Sandá/Brunná – Eins og við sögðum frá og sýndum í gær, þá var veiðin góð í Sandá. Heildatölur voru um 35 fiskar.
Litlaá í Kelduhverfi – Byrjunin í Litluá var frábær. 73 fiskum var landað og voru þeir lengstu rúmlega 70 cm langir.
Vatnaveiði – Ekki er mikið að frétta af vatnaveiðinni í gær en líklegt er að þau braggist þegar kemur inní apríl mánuð. Veiði hefst á flestum svæðum á Þingvöllum uppúr 20. apríl. Við tókum þessa mynd hér að neðan í gær, þegar við áttum leið um þjóðgarðinn. Enginn ís er á vatninu þessa stundina og ef tíðin verður í líkingu við stöðuna í dag, þá gæti veiðin í lok apríl orðið ansi áhugaverð.
