Sogið er ein þekktasta veiðiá á Íslandi og í mörg ár var hún ein albesta laxveiðiá landsins. Í Soginu má einnig finna sterkan bleikjustofn og eru kusurnar sem veiðast í ánni þekktar langt út fyrir landsteinana. Sjóbirtingur og staðbundinn urriði veiðist einnig í ánni. Veiðisvæði árinnar eru nokkur og skiptast eftir þeim jörðum sem land eiga að ánni.
Alviðrusvæðið er 3ja stanga veiðisvæði. Þegar bókaðir eru stakir dagar í sumar, þá er greitt fyrir 2 stangir en veiða má á 3 stangir. Seldir eru stakir dagar. Best veiði er oft á göngutíma laxins, frá lokum júní og fram í miðjan ágúst – en þegar kemur inn í lok sumars og laxinn fer að koma sér fyrir á hrygningarstöðum, þá veiðist einnig oft vel.
Síðasta sumar var mjög fínt á Alviðrusvæðinu. Nálægt 50 laxar komu á land og margir misstir.
Verð laxveiðileyfa á Alviðrusvæðið er með því hagstæðara sem sést í laxveiði á Íslandi. Stangardagurinn kostar á bilinu 26.900 til 38.800.
Fínt veiðihús er fyrir landi Alviðru – það fylgir ekki með leyfunum en hægt er að bóka það sérstaklega, ef það er laust.