Nú eru veiðileyfi í Fossá í Þjórsárdal komin í sölu hér á vefnum fyrir veiðitímabilið 2026

Fossá skiptist annars vegar í laxasvæði, sem er fyrir neðan Hjálparfoss, og silungasvæði, sem er fyrir ofan Hjálparfoss. Veitt er með 2 stöngum á hvoru svæði fyrir sig og er fluga eina leyfilega agnið. Veiðimenn skulu jafnframt sleppa öllum fiski.

Veiðin á laxasvæði Fossár eru oft frábær, ekki síst síðsumars og á haustin. Veiðisvæðið er tiltölulega stutt, en gríðarlega fallegt.

Hérna má sjá lausa daga og verð.

Silungasvæði Fossár er vinsælt hjá hópi veiðimanna og erfitt að finna magnaðri veiðistað en sjálfan háafoss – að veiða fosshylinn með . Þess má geta að áin og Háifoss fékk mikla athygli nýverið þegar fossinn birtist í lokaþætti „Stranger Things“. Til að veiða góðan hluta svæðisins, þá þarf að ganga nokkuð. Sjá nánar hérna.