Tilkynning

Veiða.is – Norðurá

Samstarf Veiða.is og Norðurár hefur verið með miklum ágætum undanfarin ár. Á vef veiða.is hefur verið hægt að nálgast veiðileyfi í bæði Norðurá I og Norðurá II. Nú hafa þessir aðilar ákveðið að auka samstarfið enn frekar. Breytingin mun fyrst og fremst þýða að þeim sem eru í veiðiklúbbi veiða.is, þ.e. skráðir á póstlista vefsins, mun bjóðast afsláttur af fáeinum hollum í Norðurá I og Norðurá II, fyrir komandi veiðitímabil. Fjöldi veiðimanna eru þegar skráðir í Veiðiklúbbinn í gegnum póstlistann, en fyrir þá sem eru það ekki, þá er einfalt að gera það hér á vefnum. – Afsláttarkjör verða kynnt fyrir veiðiklúbbsfélögum á komandi dögum.

 

Norðurá í Borgarfirði er ein albesta laxveiðiá landsins. Veiðisvæði Norðurár er skipt í 2 hluta, Norðurá I og Norðurá II. Norðurá I er aðal veiðisvæði árinnar en veitt er á 8-12 stangir á því svæði. Veiðimenn sem veiða Norðurá I dvelja í veiðihúsinu Rjúpnahæð, í fullu fæði og þjónustu. Á veiðisvæðinu Norðurá II, er veitt með 3 stöngum og deila veiðimenn veiðihúsinu í Skógarnefi, í sjálfsmennsku.

 

Veiða.is er stærsti óháði söluvefur veiðileyfa hér á landi. Vefurinn er 6 ára gamall. Í sölu inná vefnum eru nú hátt í 40 veiðisvæði, bæði laxveiðisvæði og silungsveiðisvæði. Veiða.is er ekki beinn leigutaki neins veiðisvæðis, heldur er vefurinn í samstarfi við fjölmörg veiðifélög og leigutaka.

Hafið samband fyrir frekari upplýsingar