Nú eru einungis 2 vikur þar til laxveiðitímabilið hefst hér á landi – veiðimenn eru farnir að sjá laxa víða og spennan er að aukast. Fyrir þá sem eiga enn eftir að ná sér í laxveiðidaga í byrjun veiðitímabilsins, þá eigum við örfáa kosti lausa
Norðurá – Munaðarnes: Eigum 2 daga eftir. 25. júní og 1. júlí. 3 stangir seldar í einum pakka, Stangardagurinn á kr. 22.700 – 29.300.
Eystri Rangá: Eigum lausa daga á flottum tíma í Eystri Rangá, í lok júní. Stórlaxatími. Í júní eru veiðisvæðin 4 í Eystri Rangá og veiðimenn veiða 2 af þessum svæðum á einum degi.
Hvolsá og Staðarhólsá: Eigum lausar 2 stangir í opnun Hvolsár og Staðarhólsár. Flottur tími, bæði fyrir laxinn og bleikjuna.
Syðri Brú – Sogið: Eigum lausa daga á þessu frábæra svæði í Soginu. Einungis 1 stöng er leyfð á svæðinu, efsta veiðisvæðinu í Soginu. Þangað uppeftir „straujar“ stóri laxinn oft sem mætir snemma í ána. Seldir stakir dagar, án húss.
Ytri Rangá: Gætum mögulega lumað á einni stöng í Ytri Rangá 29. og 30. júní. Síðustu sumur hefur þetta verið frábær tími í Ytri Rangá.
Hægt er að bóka beint á vefnum eða hafa samband til að fá nánari upplýsingar. (Seld)
Gufuá: Það eru lausir dagar í Gufuá í upphafi tímabils, í lok júní og byrjun júlí. Veiðin er oft mögnuð neðst í ánni í lok júní og í júlí.