Veiðin í Soginu hefur verið fín síðustu daga og lax að ganga. Framundan er stórstreymi og göngur eiga efalaust eftir að stækka. Veiðin í Soginu núna í sumar hefur verið miklu mun betri en í fyrra og framundan er besti tíminn á svæðum eins og Bíldsfellinu og Syðri Brú.

Fín veiði hefur verið í Bíldsfellinu en hérna fyrir neðan má sjá nokkra laxa frá síðustu 3 dögum. Í vetur var farið í miklar breytingar á húsinu við Bíldsfellið, það stækkað og uppgert. Hluta sumars hefur verið boðið uppá fulla þjónustu í húsinu og hafa veiðimenn verið mjög ánægðir með húsið og breytingarnar.

Þegar kemur inn undir miðjan ágúst þá eru nokkrir dagar lausir í Bíldsfellinu, sjá hér.