Meðalveiðin í Breiðdalsá sl. 10 ár eru um 700 laxar á 6 – 8 stangir ásamt því að meðalþyngdin er með því hæsta á landinu. Stórlaxavonin er mikil og laxar um og yfir 10 kg veiðast árlega. Óvíða veiða menn í fallegri á en Breiðdals og hliðarám. Umhverfið er stórbrotið og fjallahringur Breiðdalsins á engan sinn líka. Aðkoma að flestum veiðistöðum er góð enda hefur Veiðifélag Breiðdæla unnið að gerð vegaslóða á hverju ári og má segja að nú sé aðgengi eins gott og frekast má vera. Veiðihúsið Eyjar hefur svo skipað sér í sess með betri veiðihúsum landsins.

Fyrir sumarið 2015 munu Strengir halda verðum óbreyttum eða jafnvel lækka verð einhverra hluta veiðileyfa í Breiðdalsá ásamt því að fjölda stangardaga verður fækkað. Opnun hefur verið seinkað og lokun flýtt, ásamt því að stöngum er fækkað á vissum tímabilum. Hægt er fyrir veiðihópa að kaupa gistingu í Veiðihúsinu Eyjar án fæðis ef þess er óskað eða taka t.d. heimilisfæði á lærra verði. Að öðru leyti verður fæði-og gistigjald  á kr. 24.800 á mann á dag og þá miðað við fyrsta flokks fæði og þjónustu.

Ferðamöguleikar eru með bíl eða með flugi. Ef menn velja flugið þá er hægt að ráða leiðsögumann með bíl á vegjum Strengja. Veiðibílar ehf munu hafa nokkra bíla á Egilsstöðum sumarið 2014 og er tilvalið fyrir 3-4 menn að taka saman einn jeppa og þar með eru veiðimenn á leið í Breiðdal komnir í veiðihús eftir rúma tvo tíma frá Reykjavík. Upplýsingar um bílaleiguna er í síma 866 3586 og á netfangi [email protected].

{gallery}breiddalur{/gallery} 

ALMENNAR UPPLÝSINGAR

Staðsetning
Fjarlægð frá Reykjavík: ca. 615 km
Fjarlægð frá Egilsstöðum: ca. 80 km

Veiðisvæði: Breiðdalsá ofan Eyjanes og að og með Efri-Beljanda, en svæðið færist ofar er liður á sumarið að og með Vonarskarði. Einnig fylgir með Tinnudalsá og Norðurdalsá að Móhyl, en síðar upp að Gilsármótum.
Tímabil: 8. júlí – 30. september

Veiðileyfi: Yfirleitt þrír dagar í senn frá hádegi til hádegis, en þó í einstaka hollum tveir dagar.
Daglegur veiðitími: Daglegur veiðitími 1. júlí – 31. júlí kl. 7-13 og 16-22 en frá 1. ágúst til 10. september 15-21 eftir hádegi. Eftir það 15-20 daglega eftir hádegi. Brottfarardag síðasta morguninn skal veitt til kl. 12:00.
Fjöldi stanga: Leyfðar eru 6-8 stangir
Verð: Stöng á dag á bilinu kr. 29.800 ─ 98.800.

Veiðireglur: Fluguveiði er eingöngu leyfð í júlí og ágúst, en spónn er einnig leyfður í september og síðan maðkur frá 17. sepember. Skylt er að sleppa aftur öllum löxum 70 cm og stærri eða setja í klakkistur. Leyfilegt er að hirða tvo laxa á stöng á dag undir þeim mörkum en öðrum skal sleppt.
Vinsælar flugur: Svört Frances, Rauð Frances, Friggi, Black and Blue, Snælda, Sunray Shadow.
Veiði síðastliðin ár: 2014, 290 laxar. 2013, 305 laxar. 2012, 464 laxar. 2011, 1.430 laxar. 2010, 1.178 laxar. 2009, 782 laxar. 2008, 910 laxar.

Veiðihús: Á bökkum Breiðdalsár í landi Eyja, sem eru neðarlega við ána, er nýlegt veiðihús sem býður upp á eina glæsilegustu gistiaðstöðu á landinu. Þar eru átta tveggja manna herbergi, hvert með sérbaðherbergi, gervihnattasjónvarpi og internettengingu. Þar af bíður glæsisvíta þeirra sem virkilega kunna að vera góðir við sjálfa sig. Í húsinu er gufubað og þaðan er útgengt í heitan pott. Borðstofa og setustofa eru með konunglegum aðbúnaði þar sem glæsilegur arin er áberandi ásamt uppstoppuðum fuglum og fiskum á veggjum. Stór verönd er með grilli og góðri aðstöðu til útiborðhalds. Glæsilegt útsýni er yfir ómótstæðilegan fjallahring Breiðdalsins.

Leigutaki og frekari upplýsingar: Strengir eru leigutaki svæðisins og má sjá nánari upplýsingar inná www.strengir.is