Brúará er ein þekktasta bleikjuá á suðurlandi. Vænar bleikjur veiðast í Brúará og þeir sem hafa náð að „mastera“ þetta mikla vatnsfall, gera oft mjög góða veiði.
Oft er talað um að júní og júlí séu bestu mánuðirnir fyrir bleikjuna í Brúará – en í ár hefur maí mánuður verið að gefa mjög fína veiði. Bleikjan fór snemma á stjá og hefur verið sjáanleg víða þegar vel hefur viðrað. Hér meðfylgjand er mynd af einni flottir sem kom á land á dögunum.