Hraun í Ölfusi er staðsett vestan Ölfusárósa. Mikið af fiski gengur uppí Ölfusána, bæði lax, bleikja og birtingur. Nú á vorin þá er birtingurinn mest áberandi á ósasvæðinu. Undanfarna daga hafa komið mjög fín skot á Hrauni og veiðimenn verið að setja í fína fiska. Mikið er af Sandsíli í ósnum sem heldur sjóbirtingnum á svæðinu en hann er ný kominn og að koma ofar úr vatnakerfinu og mun halda sig á svæðinu þar til hann gengur uppí árnar aftur.
Meðfylgandi er mynd af flottum afla sem veiddist á Hrauni.
Hérna má finna dagleyfin á Hraun í Ölfusi. Leyfilegt er að veiða á allt agn.