Miðfjarðará, Silungasvæði

Lausir dagar á Silungasvæði Miðfjarðarár eru nú komnir á netið hjá okkur. Svæðið hefur verið í sölu á vefnum í nokkur ár, og yfirleitt selst nánast upp. Verði er stillt í hóf en dagurinn, 3 stangir + hús, er á kr. 59.000. Á svæðinu veiðist bleikja, urriði, sjóbirtingur og lax. Hérna má finna lausa daga.

2021-02-02T14:46:29+00:002. febrúar 2021|Fréttir|

Ytri Rangá í útboð

Veiðisvæði Ytri Rangár verður boðið út á komandi vikum. Núverandi leigutaki hefur verið með ána á leigu í all nokkur ár en mun ekki halda áfram með hana eftir komandi veiðisumar. Nánari upplýsingar verða gefnar út fljótlega en svæðið verður væntanlega boðið út til 3-5 ára, frá árinu 2022. Laxveiðitíminn í Ytri Rangá hefst uppúr

2021-01-23T09:41:19+00:0023. janúar 2021|Fréttir|

Hlíðarvatn í Selvogi – Almenn sala veiðileyfa er hafinn inná veiða.is

Veiðileyfi í Hlíðarvatn í selvogi hafa verið í sölu hér á vefnum undanfarin veiðitímabil. Þau veiðileyfi hafa tilheyrt Stangaveiðifélagi Árbliks í Þorlákshöfn og Fluguveiðiféagi Ármanna. Nú höfum við hafið bókanir fyrir Árblik fyrir komandi tímabil en 2 stangir eru seldar saman í pakka, 1 dagur í senn. sjá hér. Fljótlega, þá hefjum við almenna sölu fyrir

2021-01-21T12:09:59+00:0021. janúar 2021|Fréttir|

Sog, Alviðra – Veiðileyfin eru komin á veiða.is

Sogið er ein þekktasta veiðiá á Íslandi og í mörg ár var hún ein albesta laxveiðiá landsins. Í Soginu má einnig finna sterkan bleikjustofn og eru kusurnar sem veiðast í ánni þekktar langt út fyrir landsteinana. Sjóbirtingur og staðbundinn urriði veiðist einnig í ánni. Veiðisvæði árinnar eru nokkur og skiptast eftir þeim jörðum sem

2021-01-13T14:22:22+00:0013. janúar 2021|Fréttir|

Langadalsá – hér eru veiðileyfin fyrir 2021

Langadalsá á upptök sín á Þorskafjarðarheiði í um 4 – 500 metra hæð yfir sjó. Áin er dragá, 24 km.að lengd og fellur um samnefndan dal til sjávar við Nauteyrarós innst við Ísafjarðardjúp. Áin er fiskgeng um 20 km. veg og meðal sumarrennsli 1,6 rúmm. á sek. Hún rennur um vel gróið láglendi norður Langadalinn,

2021-01-12T15:54:11+00:0012. janúar 2021|Fréttir|

Brennan í Borgarfirði – veiðileyfin eru komin á veiða.is

Straumar og Brennan í Borgarfirði eru 2 af vinsælli og betri laxveiðisvæðunum á vesturlandi. Á venjulegu sumri fer gríðarlega mikið af fiski um svæðin, bæði lax og birtingur. Veitt er með 2 og 3 stöngum á svæðunum og leyfilegt agn er fluga í júní og júlí en í ágúst bætist spúnninn við. Fín veiðihús fylgja leyfunum á þessum

2021-01-12T09:43:15+00:0012. janúar 2021|Fréttir|

Straumar í Borgarfirði – hérna eru veiðileyfin

Nú eru laus holl í Straumunum í Borgarfirði komin á vefinn. Veiðisvæði Straumana er þar sem Hvítá og Norðurá í Borgarfirði sameinast. Svæðið er að vonum mjög vinsælt meðal veiðimanna enda fer um svæðið gríðarlega mikið af laxi sem er á leið uppí laxveiðiárnar ofar á svæðinu. Í Straumunum veiðist m.a. lax sem er á

2021-01-08T11:43:12+00:008. janúar 2021|Fréttir|

Hólmasvæðið í Skaftá – hér eru veiðileyfin

Nokkur holl á Hólmasvæðið og Mávabótaála í Skaftá eru nú komin í sölu hér á vefnum. Um er að ræða 6 stanga sjóbirtingssvæði sem er fyrir neðan Vatnamótin. Svæðið er yfirleitt best þegar líður á júlí og í ágúst - svæðið er göngusvæði - hittingur á sjóbirting sem er að þoka sér upp vatnakerfið. Birtingurinn

2021-01-06T12:49:50+00:006. janúar 2021|Fréttir|

Reykjadalsá – Veiðileyfin eru hérna

Reykjadalsá í Þingeyjarsýslu er ein albesta urriðaá landsins. Reykjadalsá er í Reykjadal, næsta dal við Aðaldal. Reykjadalsá rennur í Laxá í Aðaldal efst á Nessvæðinu, í gegnum Vestmannsvatn og Eyvindarlæk. Urriðaveiðin í Reykjadalsá er oft á tíðum mögnuð en bæði er mikið af smærri og vænum urriðum í ánni. Þegar kemur undir mánaðamót júní/júlí, má búast við að

2021-01-05T11:15:14+00:005. janúar 2021|Fréttir|

Veiðileyfi á Munaðarnessvæðið í Norðurá sumarið 2021

Nú eru veiðileyfi á Munaðarnessvæðið í Norðurá komin á vefinn hjá okkur en það svæði tilheyrir Norðurá II. Veiðisvæði Norðurá II er hreyfanlegt yfir tímabilið: Er neðst í ánni frá opnun og fram í byrjun júlí og er þá kallað Munaðarnessvæðið og er síðan efsti hluti Norðurár eftir það og er þá kallað Fjallið. Munaðarnessvæðið nær frá Kálfhylsbrotinu

2021-01-05T08:35:00+00:005. janúar 2021|Fréttir|
Go to Top