Vorveiðileyfi
Veiðitímabilið hefst formlega eftir örfáa daga. Veðurlag síðustu vikna hefur heldur betur kveikt á veiðibakteríu margra og er víst að veiðimenn og veiðikonur eru nú þegar komin með hugann við næsta tímabil. Hér á veiða.is bjóðum við uppá fjölda skemmtilegra vorveiðisvæða. Páskarnir í ár hitta akkúrat á upphaf veiðitímabils og er víst að margir munu nýta þá daga til veiða.
Hér að neðan má sjá yfirlit yfir svæðin okkar. í langflestum tilfellum eru seldir stakir dagar, frá morgni til kvölds.
Brunná – Urriði, sjóbirtingur og bleikja.
Brúará, Spóastaðir – Bleikja og urriði.
Brúará, Skálholt – Bleikja og urriði.
Hólaá. Útey – Bleikja og urriði.
Fossá – Silungasvæði
Galtalækur – Urriði
Hraun í Ölfusi – Sjóbirtingur og urriði
Hvítá fyrir landi Skálholts – Sjóbirtingur, urriði og bleikja
Minnivallalækur – Urriði
Mýrarkvísl – urriði.
Sog, Alviðra – Bleikja og urriði.
Reykjadalsá – Urriði
Vatnamótin – Sjóbirtingur