Sogið er ein þekktasta veiðiá á Íslandi og í mörg ár var hún ein albesta laxveiðiá landsins. Í Soginu má einnig finna sterkan bleikjustofn og eru kusurnar sem veiðast í ánni þekktar langt út fyrir landsteinana. Sjóbirtingur og staðbundinn urriði veiðist einnig í ánni. Veiðisvæði árinnar eru nokkur og skiptast eftir þeim jörðum sem land eiga að ánni. Nú höfum við tekið í sölu hér á veiða.is, Veiðisvæði Alviðru sem er á vesturbakka árinnar, fyrir landi Alviðru, og á austurbakkanum neðan við brú við Þrastalund.

Alviðrusvæðið er 3ja stanga svæði en í sumar verður það einungis veitt með 2 stöngum. Stangirnar 2 eru seldar saman í pakka. Seldir eru 1-3 dagar saman í senn. Í upphafi tímabils og fram til 10. júlí, þá eru seldir heilir dagar en frá 10. júlí – 25. ágúst eru seldir dagar saman sem hefjast á eftirmiðdagsvakt og enda á morgunvakt (hádegi – hádegis).

Verð laxveiðileyfa á Alviðrusvæðið er með því hagstæðara sem sést í laxveiði á Íslandi. Stangardagurinn í upphafi og lok vertíðar er á kr. 17.900 og yfir aðaltímann þá kostar stöngin á dag kr. 28.900.

Mjög gott veiðihús fylgir leyfunum yfir sumarið.

Hérna má finna veiðileyfa á Alviðrusvæðið í Júní og fram í september.

Hérna má svo finna vorveiðileyfi á Alviðrusvæðið. Seldar eru 2 stangir saman, kr. 6.500 stöngin.