Tilboð voru opnuð í útboði Dunkár í Dalabyggði í gær. SVFR hefur verið með Dunká á leigu síðustu 2 ár en vildi losa sig frá samningum í haust. Leiguverð SVFR var nálægt 5 m.kr. á ári. Veitt er með 2 stöngum í Dunká og leyfilegt hefur verið að veiða á flugu og maðk. Nokkur tilboð bárust en það hæsta kom frá einum af fyrrum leigutökum Haukadalsár í Dölum, Svisslendingnum Walter Kummer. Veiðifélagið fundaði í dag og ákvað að ganga til samninga við Walter um leigu á Dunká til næstu 3ja ára. Leiguverð er mjög sambærilegt því og SVFR greiddi í ár.

 

[email protected]