Skjálfandafljót er eitt þeirra vatnasvæða sem fór í útboð nú í haust. Tilboð voru opnuð í fljótið nú á mánudaginn. Félag í eigu Stefáns Sigurðssonar hjá Lax-á var með Skjálfandafljótið á leigu síðustu 2 sumur en þeim samningi var slitið í haust. Veitt er á 6 laxveiðistangir og 10 silungsveiðistangir á vatnasvæði Skjálfandafljóts.
Tvö tilboð bárust í útboðinu. Það hærra kom frá Laxmönnum, þeim félagsskap sem var með fljótið á leigu áður en félag Stefáns tók við ánni. Tilboðið hljóðaði uppá 8 m.kr. pr. ár. Hitt tilboðið kom frá SVAK en það hljóðaði uppá 5 m.kr. Veiðifélagið mun ganga til viðræðna við Laxmenn.