Nú eru tæplegar 3 vikur liðnar af veiðitímabilinu og með sanni má segja að skipst hafi á skin og skúrir hjá veiðimönnum sem staðið hafa vaktina á þessum tíma. Ekki hefur enn sést til vorsins, nema í nokkra tíma í senn en þó hefur veiðin almennt verið nokkuð góð þessa daga sem liðinir eru af tímabilinu. Á morgun, sumardaginn fyrsta, hefst veiði svo formlega í 2 vötnum, á suð-vestur horninu, sem vinsæl eru hjá veiðimönnum. Þetta eru Þingvallavatn og Elliðavatn.

Bæði Elliðavatn og hluti Þingvallvatns eru innifalin í Veiðikortinu og því er um mjög hagkvæma veiði að ræða. Veiðikortið í ár kostar kr. 6.900, eins og undanfarin ár og kortið er í sölu hér inná veiða.is –  sjá hér.