Eftir frábært veiðisumar, sumarið 2016, er Ytri Rangá svo gott sem fullbókuð í júlí, ágúst og september 2017. Nokkrar „forfallastangir“ og eftirlegu kindur voru þó að koma inná vefinn í sölu, sjá hér. Veiðitímabilið í Ytri er frá 21. júní og fram að 20. október. Veitt er á flugu frá opnun og fram í byrjun september en þá má einnig veiða á maðk og spun.
Dagar í upphafi tímabilis, fram til 6. júlí, og síðan í lok tímabils, frá 25. sept, eru seldir sem heilir dagar frá morgni til kvölds. Þess á milli þá eru dagar seldir, frá hád – hád. Gistiskylda er frá 6. júlí og fram til 22. September.