Nú eru veiðileyfi í Fossá í Þjórsárdal komin í sölu hér á vefnum fyrir veiðitímabilið 2021.

Fossá skiptist annars vegar í laxasvæði, sem er fyrir neðan Hjálparfoss, og silungasvæði, sem er fyrir ofan Hjálparfoss. Veitt er með 2 stöngum á báðum svæðum og er eina leyfilega agnið Fluga. Veiðimenn skulu jafnframt sleppa öllum fiski.

Veiðin á laxasvæði Fossár eru oft mjög góð. Veiðisvæðið er tiltölulega stutt, en gríðarlega fallegt. Best og mest er veiðin iðulega síðsumars. Hérna má sjá lausa daga og verð.

Silungasvæði Fossár er vinsælt hjá hópi veiðimanna þó svo að stór hluti svæðisins sé lítið stundaður, vegna erfiðs aðgengis. Til að veiða góðan hluta svæðisins, þá þarf að ganga nokkuð. Sjá nánar hérna.