Veiðin er farinn af stað í Fossá, bæði á silungasvæðinu sem er fyrir ofan Hjálparfoss, og á laxasvæðinu sem nær frá Hjálparfossi og niður að Þjórsá. Flottir fiskar hafa verið að veiðast og áin að koma vel undan vetri.

Næstu daga þá bjóðum við uppá kynningarafslátt af báðum svæðunum í Fossá. 20-30% afslátt.

Hérna má finna lausa daga og verð á neðra svæðið.

Hérna má finna lausa daga á efra svæðið í Fossá.

Meðfylgjandi er flottur urriði sem koma á land á sunnudaginn, niður við ármótin við Þjórsá.