Síðustu daga hefur veiðin í Soginu verið að taka við vel við sér. Bíldsfells/Torfastaðasvæðið er í sölu hérna á vefnum. Veiðimenn hafa verið að setja í fiska frá Sakkarhólma að ofanverðu og allt niður að á hólmasvæðið á Torfastöðum.

Við heyrðum í veiðimanni sem fór á svæðið í gær, við annan mann. Hann náði 12 bleikjum á land og sú stærsta var ca. 5 pund – flott kusa.

Flugan sem var að rótfiska hjá honum heitir Atlas og var hnýtt af veiðimanninum, Ólafi Foss. Stærð #16 virðist gefa best. Sjá mynd af flugunni hér að neðan.

Það eru lausar stangir á næstunni. Sjá hér.