Veiðin á þessu tímabili hefur aldeilis verið góð í Hlíðarvatni í Selvogi. Veiðin hófst 1. maí, eins og ávallt. Frá fyrsta degi þá hefur veiðin verið góð – mis góð – en flestir veiðimenn hafa orðið varir við mikið af bleikju. Við höfum heyrt af nokkrum veiðimönnum sem hafa sett í 20-35 bleikjur yfir daginn, bæði alvöru bleikjukusur og þessa týpísku hlíðarvatns stærð. Þröstur Garðarsson sendi okkur smá skýrslu en hann var við veiðar um helgina.

Þröstur var við veiðar við annan mann. Þeir byrjaðu daginn við Hlíðarey og í fyrsta  kasti tók 58 cm löng bleikja sem reyndist vera rétt um 2,4 kg að þyngd. Í næsta kasti eftir að sú stóra tók, þá tók önnur bleikja og svo önnur og svo önnur. Þeir félagar lönduðu samtals um 70 bleikjum þennan dag og settu í miklu fleiri – þeir slepptu nokkrum og hirtu aðrar. Meðfylgjandi er mynd af hluta aflans.

Það verður gaman að fylgjast með framvindunni við vatnið. Þess má geta að nú þegar eru um 260 bleikjur komnar í bókina í húsi Árbliks en Árblik fer með veiðirétt 2 stanga við vatnið. Meðalveiði á stöng á dag, frá opnun, er því um 8 bleikjur. Flott veiði.

Hérna má finna leyfi í Hlíðarvatni hjá Ármönnum – seldar eru stakar stangir, 1-3 í senn.

Hérna má finna leyfi hjá Árblik – seldar eru 2 stangir saman í pakka.