Laxveiðisumarið í sumar var frábært í Laxá á Ásum. Veitt er á tvær stangir í ánni allt tímabilið og leyfilegt agn er fluga. Veitt er í 82 daga í Ásunum og í sumar komu samtals 1.019 laxar á land. Það gerir rétt um 510 laxa á stöng eða rúmlega 6 laxa á stöng á dag, að meðaltali yfir tímabilið. Ótrúlega góð veiði.

Nýjir leigutakar tóku við Laxá á Ásum árið 2012. Það sumar komu einungis 211 laxar á land sem var líklega það lægsta sem komið hefur úr ánni. Eins og menn muna þá var sömu sögu að segja úr mörgum öðrum ám. Seiðabúskapur í Laxá á Ásum hefur yfirleitt alltaf verið mjög góður og því reiknuðu menn með að útkoma síðasta sumars hefði verið vegna ytri aðstæðna en ekki ástandsins í ánni. Óhætt er samt að segja að sumarið í sumar hafi farið fram úr björtustu vonum.

Nýjir leigutakar tóku nýtt veiðihús í gagnið í vor. Gamla veiðihúsið við Laxá á Ásum fékk nýtt hlutverk en það þjónar nú veiðimönnum sem sækja ósasvæði Ásanna heim. Nýja húsið er í landi Hnjúka en þaðan er útsýni yfir nokkra af bestu veiðistöðum árinnar.

Photos: Matt Harris

[email protected]