Eins og veiðiáhugamenn muna, þá var Mýrarkvísl að mestu friðuð sumarið 2013. Einungis ca. 15 dagar voru seldir í sumar. Töluvert mikið af laxi er þó núna í ánni. Sumarið 2012 var Salmontails með ána á leigu en þá um haustið fór hún í útboð. Þau tilboð sem bárust voru ekki eins og veiðifélag árinnar vonaðist eftir og því var sú ákvörðun tekin að „friða“ ána í eitt sumar. Minnkandi veiði síðustu sumur spilaði einnig inní þá ákvörðun. Nú eru hinsvegar miklar líkur á að áin fari aftur í útleigu annað hvort í kjölfar útboðs eða með beinum samningi við valinn aðila.
Mýrarkvísl er ein af mörgum hliðarám Laxár í Aðaldal. Eins og Laxá í Aðaldal er Mýrarkvísl þekkt fyrir góða meðalþyngd og undurfagurt umhverfi. Mýrarkvísl rennur út í Laxá í Aðaldal um fjórum kílómetrum frá ós Laxár. Þrátt fyrir að vera hliðará Laxár þá er ekki hægt að segja að árnar séu líkar. Mýrarkvísl er frekar nett veiðiá sem þarf að fara nokkuð varlega að til þess að ná góðum árangri. Veitt hefur verið með 3 stöngum í Mýrarkvísl.
Mýrarkvísl á marga fylgismenn og grétu margir það að komast ekki ána í sumar. Ákvörðun um hvaða fyrirkomulag verður með sölu leyfa á næsta sumri, verður tekin á næstu vikum.