Hvert sem litið er, ber að líta fínar veiðifréttir. Laxveiðivertíðin fer ljómandi vel af stað og svo er ýmiss vötn að gefa mjög fína veiði. Jú, það eru reyndar ein og ein frétt um ekki svo góða veiði, eins og t.d. í Veiðivötnum, en allt horfir til betri vegar þar. Í dag opnaði ein af þeim laxveiðiám sem eru hér inni á veiða.is og svo heyrðum við af ágætri veiði í Brúará í dag.
Gufuá í Borgarfirði er 2ja stanga laxveiðiá. Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn. Veiðihús fylgir ekki með seldum veiðileyfum heldur er veitt frá morgni til kvölds. Gufuá rennur til sjávar í ósa Hvítár og áhrifa sjávarfalla gætir á neðstu stöðum árinnar. Veiði var að hefjast í Gufuá. Í dag bárust þær fréttir að 4 flottir laxar hefðu veiðst á morgunvaktinni í dag. Nokkuð er um lausar stangir í ánni á næstunni og því viljum við benda áhugasömum á að kíkja á úrvalið hérna. Verð veiðileyfa er með því lægsta sem sést í laxveiðiá. Stangardagurinn er frá 10-20 þús. Sjá nánar um Gufuá hérna.
Frekar rólegt hefur verið í Brúará fyrir landi Spóastaða að undanförnu en síðustu fréttir benda til þess að bleikju sé að fjölga á svæðinu. Síðustu viku höfðum við frétt af nokkrum sjóbleikjum sem höfðu veiðst og í dag komu svo um 10 bleikjur á land. Voru þær að veiðast í Kerlingavík og uppvið foss. Nokkuð er um lausar stangir næstu daga og næstu helgar. Fyrir áhugasama þá er dagurinn á kr. 3.300. Sjá nánari upplýsingar hérna.