Þær eru að opna árnar, hver á fætur annari. Grímsá er ein þeirra sem opnaði í dag. Leigutaki Grímsár er Hreggnasi en eins og glöggir menn muna , þá opnaði önnur af þeirra ám í vikunni, Laxá í Kjós. Kjósin opnaði frábærleg og eftirvænting var mikil að sjá hvort Grímsá gæti einnig verið með sannfærandi opnun. Tólf fiskar var niðurstaðan eftir morguninn í Grímsá og varla hægt að ímynda sér betri opnun, ekki síst í ljósi þess að algert logn og sól var hluta af deginum.

Nú heyrast sögur víða að af góðum göngum á hverju flóði. Fram undan er Jónsmessustraumurinn, einn stærsti straumur sumarsins, en miklar vonir eru bundnar við hann. Eftir þessa fínu byrjun á laxveiðivertíðinni, eru meira að segja svartsýnustu menn farnir að brosa útí annað. Það er ekkert fast í hendi með sumarið, en er á meðan er og um að gera fyrir veiðimenn að njóta hverrar stundar sem þeir geta á bökkum ánna.

[email protected]