Veiðiin í Gufuá heldur áfram að vera með miklum ágætum, þrátt fyrir að vatnsskortur hamli því að lax gangi uppá efri svæði árinnar. Sem dæmi um fína veiði, þá settu veiðimenn sem voru við veiðar nú á þriðjudaginn, í 19 laxa og lönduðu 10 af þeim. Örsmáar svartar og rauðar Frances flugur skiluðu mesta árangrinum. Veðrið var s.s. ekki mjög veiðilegt; 20 stiga hiti og logn – flesta laxana fengu þeir á veiðistaðnum Óperunni og staðnum þar fyrir ofan. Hér má sjá hvað er laust á næstunni.

Hér er hægt að finna nokkuð ítarlegar upplýsingar um veiðina í Gufuá og hvernig best er að standa að veiði í ánni.

info at veida.is