Eins og við sögðum frá fyrir skömmu, þá hefur mikið af laxi gengið í Laugardalsá á síðustu dögum. Veiðin hafði einnig verið ágæt en nú hefur hún rokið að stað. Síðasta holl, þeir sem hættu veiðum á hádegi í dag, voru með 41 lax sem er aldeilis frábær veiði á 3 stangir. Veiddist vel útum alla á og komu um 10 laxana á smáar hitch-túpur. Að sögn þessara veiðimanna er mikið af laxi í ánni og mikið af laxi að ganga í ána. Á myndinni er Jóhannes Hinriksson með lax sem tók hitch-túpu í Laugardalsá í gær.

Það eru nokkrir dagar lausir í Laugardalsá í ágúst – þar á meðal verslunarmannahelgin. Sjá hér,

 

info at veida.is