Jæja, það er ekki seinna að vænna að fara að huga að næsta veiðitímabili. Jú, það er rétt, það má jafnvel segja að veiðitímabilinu í ár sé ekki enn lokið en það er samt þannig að það eru mjög margir farnir að huga að næsta sumri. Í dag voru fyrstu veiðileyfin fyrir sumarið 2014 skráð inná veiða.is. Um er að ræða nokkra lausa daga í Fremri Laxá, daga í maí og í september. Á næstu vikum munu fleiri leyfi verða skráð inná vefinn.

Fyrir þá sem vantar aðstoð eða vilja fá tillögur um hvert skal haldið til veiða á næsta sumri, þá er um að gera að senda póst á [email protected] og við reynum eftir fremsta megni að aðstoða.

[email protected]