Þó ekki sé nema rúmur mánuður frá því síðasta veiðitímabili lauk með formlegum hætti, þá eru flestir veiðimenn farnir að huga að því næsta sem hefst eftir um 125 daga. Við erum nú þegar búin að skrá fyrstu veiðileyfin inná söluvefinn eins og sjá má hérna. Um er m.a. að ræða veiðileyfi í Svartá, Gufuá og Hvolsá og Staðarhólsá. Á næstu dögum og vikum munum við svo bæta fleiri veiðiám inná vefinn í sölu, bæði gömlum og nýjum andlitum.

Ef ykkur vantar aðstoð við að finna drauma veiðina fyrir ykkur eða ykkar veiðihóp, sendið okkur endilega tölvupóst eða fyllið út formið hér á vefnum og við munum hafa samband eins fljótt og við getum.

info at veida.is