Nú er veiða.is komin í ný föt. Við höfum skipt út veiðigallanum sem keyptur var 2011 og erum komin í nýjar vöðlur og jakka. Samhliða þeirri breytingu höfum við einnig tekið í gagnið nýtt og aðgengilegt sölukerfi. Hægt verður eins og áður að ganga frá greiðslu með kreditkorti og millifærslu, en nú með sjálfvirkari hætti en áður. Á vefnum hafið þið einnig aðgang að yfirliti yfir leyfin ykkar og viðskipti sem þið hafið átt við veiða.is. Við vonum að viðskiptavinum okkar lítist vel á þessa breytingu en við fögnum öllum ábendingum og tillögum sem geta gert veiða.is að enn betri söluvef fyrir veiðileyfi.
Kíkið endilega yfir vefinn og gott væri að fá ábendingar ef þið sjáið eitthvað sem hefur farið úrskeiðis við uppfærsluna. Enn er verið að slípa nokkra hluti á vefnum.
Kristinn, vefstjóri og eigandi veiða.is