Gíslholtsvatn er í Holtshreppi, skammt austan Þjórsár. Vötnin eru reyndar tvö; Gíslholtsvatn eystra og vestra. Handhafar Veiðikortsins mega aðeins veiða í eystra vatninu að vestanverðu, þ.e.a.s í landi Gíslholts. Gíslholtsvatn er um 1,6 km2 að flatarmáli og í 65m hæð yfir sjávarmáli. Mesta dýpt er um 8 m en meðaldýpt um 2,5 m. Í vatninu er Staðbundin bleikja og urriði. Bleikjan er öllu jöfnu nokkuð smá en urriðinn getur verið vel vænn. Leyfilegt er að veiða allan sólahringinn og leyfilegt agn er fluga, maðkur og spónn.
Kristján Friðriksson hjá FLUGUR OG SKRÖKSÖGUR hefur reynslu frá Gíslholtsvatni og hefur ritað nokkur blogg um vatnið á vefinn hjá sér. Kristján hefur gert kort af vatninu (sjá til hliðar) með þeim veiðistöðum sem hann veit af eigin reynslu að fisk er að finna. Kíkið endilega inn á FLUGUR OG SKRÖKSÖGUR og lesið ykkur meira til um Gíslholtsvatn, sem er nýtt í Veiðikortinu 2014.