Veiði hefur gengið með ágætum í Litluá og Skjálftavatni fyrstu þjá mánuði veiðitímans. Veðrið hefur einnig leikið við veiðimenn og allt lífríki er með miklum blóma. Frá upphafi veiðitímans 1. apríl til 26. júní hafa veiðst 858 fiskar í Litluá og 178 fiskar í Skjálftavatni eða 1036 fiskar alls á vatnasvæðinu. Þetta eru tæplega 12 fiskar á dag á þessu tímabili eða 2,4 fiskar á stangardag en þess ber að geta að nokkuð vantar á að allar stangir séu seldar og veiði á hvern virkan stangardag því talsvert hærri. Talsvert hefur veiðst af vænum fiskum, t.d. fjórir 80 cm urriðar. Alls veiddust 93 fiskar sem voru yfir 65 cm og hátt hlutfall aflans er yfir 50 cm. (af www.litlaa.is) Mynd: Helgi Þór Helgason með einn 67cm sem ók Dýrbít í Skjálftavatni.
(Eldri myndir)
{gallery}litlaa{/gallery}
Það eru lausar stangir í Litluá í Júlí.