Nessvæðið í Aðaldal er eitt þekktasta stórlaxasvæði landsins og til marks um það þá komu tveir stærstu laxar síðasta sumars hér á landi, á land á Nessvæðinu. Veiðin í sumar hefur verið mjög góð en nær eingöngu laxar yfir 80 cm langir hafa veiðst. Hér fyrir neðan eru nokkrir drekar sem komið hafa á land á síðustu dögum en þess má geta að þessi hér til hliðar er 101 cm og tók hitchtúpu í gær á stað sem heitir Stíflan. Það eru nokkrar lausar stangir á Nessvæðinu nú í júlí.
{gallery}va{/gallery}