Veiðileyfi í Gufuá eru nú komin á vefinn fyrir næsta veiðitímabil. Veiðileyfi í Gufuá hafa verið í sölu hér á veiða.is í nokkur ár og því þekkja viðskiptavinir okkar nokkuð til árinnar. Veitt er á 2 stangir í Gufuá og eru stakir dagar seldir, frá morgni til kvölds, með hefðbundinni pásu um miðjan dag. Stangirnar eru seldar saman, eða í sitthvoru lagi. Leyfilegt er að veiða á flugu og maðk í Gufuá.
Gufuá getur orðið fremur vatnslítil á þurrkasumrum en þá er það yfirleitt neðsta svæðið sem heldur veiðinni upp í ánni. Gufuá deilir ósasvæði með Hvítá í Borgarfirði og þegar fellur að, þá þrýstist vatn úr Hvítá uppí neðstu veiðistaði Gufuár og svæðið fer stundum allt á flot. Þegar svo fer að falla út aftur og laxinn fer að koma sér fyrir aftur, lenda veiðimenn oft í ævintýralegri veiði. Hérna má finna góða veiðistaðalýsingu frá Gufuá