Veiðileyfi í Gufuá eru nú aðgengileg hérna á vefnum. Veiðileyfi í Gufuá hafa verið í sölu hér á veiða.is í nokkur ár og því þekkja viðskiptavinir okkar nokkuð til árinnar. Gufuá getur orðið fremur vatnslítil á þurrkasumrum en þá er það yfirleitt neðsta svæðið sem heldur veiðinni upp í ánni. Gufuá deilir ósasvæði með Hvítá í Borgarfirði og þegar fellur að, þá þrýstist vatn úr Hvítá uppí neðstu veiðistaði Gufuár og svæðið fer stundum allt á flot. Þegar svo fer að falla út aftur og laxinn fer að koma sér fyrir aftur, lenda veiðimenn oft í ævintýralegri veiði. Hérna má finna góða veiðistaðalýsingu frá Gylfa Jóni Gylfasyni, sem þekkir ána mjög vel.

Verð veiðileyfa í Gufuá næsta sumar er frá kr. 16.000 – 31.000. Lítið veiðihús eða veiðikofi fylgir með veiðileyfum í Gufuá og geta veiðimenn komið í hús að kveldi fyrir veiðidag og þeir þurfa að yfirgefa húsið og hreinsa það, áður en næstu veiðimenn koma í hús.