Veiðin í Hlíðarvatni í Mai var nokkuð góð, þrátt fyrir mjög leiðinlegt veður á köflum. Veðrið hafði klárlega einhver áhrif á ástundun, enda var sett rigningar met á Suðurlandi í Mai. Reikna má með að nú séu búið að skrá nálægt 600 bleikjur í bækurnar, sem telst gott þegar einn mánuður er liðin af tímabilinu í Hlíðarvatni.
Hér inni á veiða.is seljum við veiðileyfi fyrir Stangaveiðifélagið Árblik sem fer með veiðirétt 2ja stanga í Hlíðarvatni. Júní er full seldur og einnig áætur hluti af júlí mánuði. Enn eru þó nokkrir helgidagar lausir, sjá hér.
Myndina hérna tók Einar Falur, í gærmorgun en þann morgun sýndi vatnið allar sínar bestu hliðar. Hægviðri eða logn og vatnið kraumaði af bleikju sem var í æti við og í yfirborðinu. Einar Falur setti í og landið fjölmörgum stórum og smáum bleikjum, hirti nokkrar og sleppti öðrum. Bleikjurnar tóku hinar ýmsu flugur s.s. Krókinn, Watson Fancy, Herdísi og Peacock.